miðvikudagur, 26. desember 2007

Árið 2007 sem er að líða

Árið sem er að líða

Sæl öllsömun sem kíkja hingað. Nú er senn þessu ári að ljúka þ.e. árið 2007. Vinir koma og vinir fara. Það má nú segja að árið hafi verið stormasamt hjá mér. Margt á daga drifið sem ég mundi ekki hafa valið mér sjálfur en síðan hefur raknað úr því mörgu. Það er hætt á því að maður taki út þroska við átök sem eru að baki enda vex grænn gróður í skugga ekki satt og ávaxtalaus jurt er visnandi jurt, svo að hún þarf haust. Svo að allt verkar til góðs fyrir þá sem Guð elska eins og Heilaga Ritningin vísar til í Rómverjabréfi 8:28. Það góða vil ég draga fram og það er að núna er maður loks að jafna sig eftir langa fjarveru frá nærveru Guðs og á nýju ári vona ég eftir að leggja sjálfan mig enn meir að mörkum fram fyrir altari Drottins. Ég var ekki að segja að Guð hafi ekki verið nálægt mér heldur að ég hafi ekki nálægt mig nóg að honum. Þetta tekst aðeins með því að gefa Drottni af tíma sínum. Vinir hafa gengið af brautinni og það er eins og það sviðni í kringum þá. Ekki er hægt annað en að biðja fyrir þeim því að von er að þeir komi aftur úr skugganum og með ávöxt á greinum sínum. Höldum áfram að temja okkur til góðra verka og heilsa hver öðrum með hlýju og virðingu. Gleymum ekki Orðskv. 17:17 "Vinur lætur aldrei af vináttu sinni, í andstreymi reynist hann sem bróðir." (Biblíuútgáfa 2007). með kv. Hörður.

Engin ummæli: