föstudagur, 28. desember 2007

Predikarinn

Elskum, hötum ekki.


En svo hefur það oftar en einusinni gerst að maður hefur kastað perlum fyrir svín. "Vinir" hafa logið að manni, frekjast, reynt að hagnast eða komast ofan í vasann hjá manni. Lyft sér upp á manns kostnað og jafnvel öskrað á mann. Mælt vináttuna eftir getu á að segja brandara, elt mann á röndum, dregið mann á asnaeyrum og hlegið sigrihrósandi jafnvel til þess að fullkomna hræsnina. Aðrir eru fámælgir þar til að maður hittir á áhugasviðið, nískir, ofbeldishneigðir og jafnvel rasistar og hættulegir. Þeir geta verið kappsamir um það sem skiptir ekki máli, bitrir og jafnvel niðrandi og gefa skít í náungann en sjálfir uppveðraðir og hróðugir, hrokafullir og hávaðasamir. Maður hefur séð manngreinarálit í "vináttu" við aðra og líka gróðarhyggju. Ég hef séð jafnvel svikafléttur. Ég hef fengið að sjá hvernig smeðjulegir hafa náð að nofæra sér aðra eins og mig. Ég hef séð tilfinningleysi og hatur.


Ég hef oftast verið gríðarlega þunnur að því leiti að "vilja" verað góður, ég hef reynt að vera auðsveipur, vingjarnlegur, tilbúinn til þess að leysa úr flækjum, lýta upp til aðra, gefa af mér, opna budduna, hlæja með hlæjendum, hlusta, hlaupa í sjoppu fyrir aðra, lána frá mér, þola frekjur, fyrirgefa afbrot gegn mér, láta teygja mig og toga, láta aðra græða frekar en tapa, hjálpa peninglitlum, gefa af tíma mínum, gefa gleðisprautu, skemmta skrattanum í náunganum o.s.frv. o.frv.


Nú en síðan kíkjum við í Biblíuna og skoðum hvernig þetta ætti allt saman að vera. Það er nú svo sem svipaðar lýsingar til þar því ekkert er nýtt undir sólinni eins og skrifað er í Predikaranum. Maður reyndar nemur þar úr bóklestri svipað og maður hefur hér að ofan úr sinni eigin reynslusögu. Þó það sé rétt að maður eigi að leyfa Frelsaranum að leiða sig í gegnum lífið að þá þarf maður að læra að forðast það að láta menn niðurtroða perlum okkar eins og svín en þess í stað ávíta menn. En annars gjarnan opnið Biblíuna og lesið Orðskviðina ég mæli með því. Framhald síðar.


Með kveðju Hörður.

Engin ummæli: