fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Hallur brá sér í kokkafötin heima og..
Nú brá Hallur sér í fyrsta sinn heima hjá sér í kokkaragallann og eldaði ágætis kálfsnitsel og æðislegt grænmeti með.
Júlía varð hissa á grænmetis skálinni enda mjög góð að þessu sinni, þ.e.a.s. innihald hennar.
Ég er enn að drepast í bakinu eftir tjaldvagninn. Hinn ófullkomni tengibúnaður á tjaldvagninum varð til þess að ég hélt honum á mjóhryggnum af þrjósku minni og varð til þess að ég meiddi mig í bakinu.
En það var gleðilegt í dag að hitta á Óla Ísraelsvin og Jónínu o.fl. sitjandi við borð á Iðunnarkaffi talandi um mig í sömu andránni og þegar ég birtist með Júlíu í föruneyti, kaffi og eplatertu. Það vantaði pípara. Þau eru að fara í næsta mánuði til Ísraels. Til Landsins helga á Laufskálahátíðina. En ég hef einu sinni farið á hana og plana fleiri ferðir.
Ég gleymi því aldrei hvernig hátíðin hefst með fullu tungli sem rís upp úr fjöllum í austri og þar með samkvæmt skipun hins Hæsta hefst hátíðin formlega. Ég hvet alla sem hafa lagt til hliðar utanlandsferð að heimsækja fyrirheitna Landið og spígspora um Jerúsalem.
kveð að sinni.
sunnudagur, 26. ágúst 2007
Þetta er fyrsti pósturinn í nýja blogginu!
Sælir veri allir vafrarar! Ég er að opna bloggsíðu og sjá svo til hversu þörf ég hef á að tjá mig!
Hallur er kominn í kokkinn. Verður busaður á morgun og allt að gerast hjá honum. Það verður tilraunakokkerí á heimilinu næstu árin og það verður bara gaman.
Nú er Friðberg Traustason að fara til Alabama á biblíuskólann svo að þeir vinirnir eru núna að kveðjast í dag og hittast svo aftur í jólafríinu.
Sumarfríið var í fyrsta sinn langt hjá mér.. heilar 3 vikur. Af þeim fóru tvær vikur á hestbaki yfir 430 km. og svo tjaldvagnaferð á Vestfirði og Strandir. Alveg stórfínt. Verst var að um leið og maður kveikti á símanum á heimleiðinni að þá fór hann að pípa á mig. Ekki nóg að vera pípari en þegar þetta pípir á mann og maður er kominn í útkall áður en maður kemst yfir Borgarnesbrúnna ....
Nú er Trausti kominn í dagleyfi út af Hrauninu og það er yndislegt að fá að sjá bróðir sinn aftur eftir 2 ár þó rétt sem snöggvast. Hann er alltaf jafn góður að hlusta enda hefur hann núna "nógan tíma" til að stytta sér stundirnar enda hjálpar það honum heilmikið að vera vel að sér í trúnni á Jesúm Krist sem gefur honum rósemi og styrk til þess að takast á við allt hangsið á Hrauninu.
Ég læt þetta nægja að sinni... mig langar að skrifa hér ýmsar hugleiðingar í framtíðinni.
með kv. Hörður.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Hallur kokknemi með hnífin sveiflandi á myndasmiðinn.