23. ágúst 2008
11:32
Við erum súper Krossarar
og til í hvað sem er
hundleiðir á holdinu
og harðlífinu hér.
Við erum klárir í Orðinu
og flettum upp í Strongs
stingum af úr holdinu
og inn í dýrðina.
Við dönsum hringin í kringum pontuna
rauðsprengdir, flekklausir, lappalangir,
kiðfættir og hoppum púkum á.
Svitalímdir, fastandi, á anda hastandi
þessar súper samkomur
þær ávöxt gefa mér.
„Kýr í sandala, kýr í sandala“
ofsalega er andlaust hér.
Hvað er eiginlega að ske hér?
Í hvaða söfnuði erum við í eiginlega?
Er þetta Fíladelfía eða hvað?
Voðalega er líflaust hér.
Er þetta svona allstaðar?
Drífum okkur í Krossinn.
Það er súper samfélag.
Við dönsum hring í kringum pontuna
o.s.frv.
Pasted from <file:///C:\Users\Notandi\Documents\supersongur%201987.docx>