Ég óska öllum góðs og gæfu á nýju ári! Við feðgarnir nenntum ekki að skjóta upp í rokinu. Keyptum lítið í ár af flugeldum. Við rétt skriðum inn fyrir lokun þegar verið var að ferma sendibifreið með góssinu frá einni flugbjörgunarsveitinni. Ég hef keypt af ýmsum en nú er komið að því að vera skýrari í hugsun og styrkja björgunarsveitinar frekar en einhvern kaupmann út í bæ sem leitar skjótfengis gróða fyrir sig einan. Við vorum í fyrra í Svíðþjóð á þessum tíma og það var ekki gaman. Flugeldasýningin vantaði og þar með almennileg áramót. Ekkert skaup var þá og það var miður því að þó að menn kvarti yfir skaupinu þar sem menn bíða eftir gríninu sem ekki kemur að þá finnst mér þetta vera fastur liður sem ekki má vanta. Það voru margir við brennurnar núna og hef ég varla séð svona mergð manna fyrr í kringum brennur. Kannski var það vegna þess að þær vor brenndar daginn eftir eða í dag nýársdag. Forsetinn okkar lýsti yfir því að hann gæfi aftur kost á sér einu sinni enn. Ég þakka konu minni fyrir að hafa vitnað fyrir honum á síðasta ári þegar hann heimsótti Dvöl. Hún gaf honum vers að hugsa um frá Jóhannesi 14:2 en þar stendur:
"Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo, hefði ég þá sagt yður, að ég færi burt að búa yður stað?"
En hún talaði um næsta viðburð á klukku Guðs, burthrifninguna við forsetann. Ekk varð henni ágengt með þetta því svo virtist sem að hjartað hans hafi verið svolítið brynvarið fyrir svona óvæntri uppákomu. En þó að óvænt væri fyrir hann að einhver kæmi og vitnaði fyrir honum að þá má líta svo á að þessi ótímabæru stundir að okkar mati séu ein af stóru stundunum í lífi okkar margra. Flest okkar sem vitnað hefur verið fyrir erum þakklát því. Við gáfum Jesú séns og leyfðum honum að koma inn í hjartað. Ég vissi reyndar ekki að hjartað mitt tók við honum á þeirri stundu. Ég játaði því ekki alveg strax. En eins og stendur á ensku "Your heart leap of joy" svoleiðis var mín upplifun. Hjartað hoppaði af gleði. Þetta var allt mjög séstakt og ég held að þetta sé í raun falið handa smælingjunum. Aðrir sem ekki hafa upplifað, þekkja ekki og hafna þessu.
Það eru margir sem eru andlega leitandi að einhverju til dæmis visku af heimspekilegum toga eða leita framliðna en það er í raun að hoppa yfir lækinn. Nóg er að beygja kné sín niður. Það þarf ekki að fara lengra til að leita Guðs í Jesú Kristi. Þetta eru ca. 60 cm í bogalínu frá hné niður að gólfi. Lengra þarf ekki að fara ef þú þarft að fara eitthvað. Beygðu höfuð þitt og biddu Drottinn Jesú Krist um að kom inn í líf þitt. Hann er Alfa og Ómega. Vegurinn, Sannleikurinn og Lífið. Gefðu honum líf þitt og þá munt þú finna það. Segðu aðeins "Drottinn Jesú komdu inn" "Þú ert velkominn". Ef þú ert einlægur í trú þinni að þá munt þú upplifa nýja hluti gerast sem þú órar ekki fyrir. Gengi þér vel.
Með kv. Hörður.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli