sunnudagur, 26. ágúst 2007

Þetta er fyrsti pósturinn í nýja blogginu!

Sælir veri allir vafrarar! Ég er að opna bloggsíðu og sjá svo til hversu þörf ég hef á að tjá mig!

Hallur er kominn í kokkinn. Verður busaður á morgun og allt að gerast hjá honum. Það verður tilraunakokkerí á heimilinu næstu árin og það verður bara gaman.
Nú er Friðberg Traustason að fara til Alabama á biblíuskólann svo að þeir vinirnir eru núna að kveðjast í dag og hittast svo aftur í jólafríinu.

Sumarfríið var í fyrsta sinn langt hjá mér.. heilar 3 vikur. Af þeim fóru tvær vikur á hestbaki yfir 430 km. og svo tjaldvagnaferð á Vestfirði og Strandir. Alveg stórfínt. Verst var að um leið og maður kveikti á símanum á heimleiðinni að þá fór hann að pípa á mig. Ekki nóg að vera pípari en þegar þetta pípir á mann og maður er kominn í útkall áður en maður kemst yfir Borgarnesbrúnna ....

Nú er Trausti kominn í dagleyfi út af Hrauninu og það er yndislegt að fá að sjá bróðir sinn aftur eftir 2 ár þó rétt sem snöggvast. Hann er alltaf jafn góður að hlusta enda hefur hann núna "nógan tíma" til að stytta sér stundirnar enda hjálpar það honum heilmikið að vera vel að sér í trúnni á Jesúm Krist sem gefur honum rósemi og styrk til þess að takast á við allt hangsið á Hrauninu.

Ég læt þetta nægja að sinni... mig langar að skrifa hér ýmsar hugleiðingar í framtíðinni.

með kv. Hörður.

Engin ummæli: